Gerbaunir og megrunarbækur
Það munaði engu að ég missti 150 g af geri ofan í pott með heitri baunasúpu áðan. Það hefði nú getað orðið áhugaverð baunasúpa.
Ég var annars að skoða lista yfir bækur sem amazon.com mælir með að ég kaupi mér. Þær skiptust í tvo flokka. Súkkulaðimatreiðslubækur (sem ég hef keypt mikið af í gegnum tíðina) og megrunarbækur (sem ég hef aldrei keypt). Einhver hjá Amazon er líklega farinn að hafa áhyggjur af mér.