Ekki alveg með á nótunum
Ég er búin að komast að því að það er dagsatt sem einkasonurinn hefur verið að fullyrða um að hann fylgist ekki með fréttum. Hann kom af fjöllum í gær þegar ég fór að tala um sorg mína vegna dauða minnar innri ljósku; hafði ekki grun um að hún væri gengin fyrir ætternisstapann.
Ég gleymdi að spyrja hann hvort hann hefði heyrt minnst á minni háttar fréttir eins og frávísun olíufélagamálsins eða Breiðavíkurmálið.