Sisyfos
Ég bað einkasoninn um að tæma nokkra kassa af því að mig bráðvantaði kassa til að geta lokið við að tæma bókahillurnar sem ég ætla að flytja á sunnudaginn (og NB, ef einhver getur hjálpað mér að flytja á sunnudag væri það afskaplega vel þegið).
Þegar ég kom heim áðan var hann búinn að tæma nokkra kassa, það vantaði ekki. Og hafði raðað DVD-diskunum sem hann tók úr þeim vandlega upp í þær bókahillur sem ég var þegar búin að tæma.
Ég er að vísu búin að sjá lausn á þessu. Ég sel honum andskotans bókahillurnar og kaupi nýjar. Slepp við að flytja þessar. Þarf að bera það undir hann á morgun.