Ég held ég nenni ekki á pressuballið.
Það var svosem fínt í fyrra og hitteðfyrra (þótt fullir blaðamenn séu misskemmtilegir) en ég er einhvernveginn ekki í ballstuði þessa dagana. Eiginlega bara ekki í neinu stuði. Spurning um að fara eitthvað út að borða á Food & Fun í staðinn kannski.
En í staðinn fyrir að panta mér miða á ball pantaði ég tíma í sjónskoðun. Gleraugun mín eru búin að vera skökk síðan ég steig ofan á þau um daginn og það er líka löngu kominn tími til að gera eitthvað í málinu. Spurning um drastískar aðgerðir ...