Ég fann að sjálfsögðu hleðslutækið af símanum. Reyndar ekki fimm mínútum eftir að ég kom heim með þetta nýja en það var bara af því að það reyndist vera hér í vinnunni en ekki heima. Það lá á stól hér á skrifstofunni. Nákvæmlega sama stólnum og undir sömu svuntunni og vegabréfið mitt fyrr í vetur.
Ég læri víst ekki af reynslunni.
En ókei, nú á ég allavega tvö hleðslutæki og get geymt annað heima og hitt í vinnunni.