Er eitthvert steinseljuhallæri í bænum? Ég fór í þónokkrar búðir í dag og fékk hvergi steinselju, nema þá svo ræfilslega að mér datt ekki í hug að kaupa hana. Steinselja er náttúrlega kryddjurtin sem er alltaf til, alls staðar - ég man bara ekki eftir að hafa lent í því fyrr að fá ekki steinselju. Ekki í mörg ár allavega.
En ég kemst reyndar alveg af án hennar. Ætlaði að búa til steinseljupestó en það verður bara klettasalatspestó í staðinn. Síst verra.