Ég var búin að heita sjálfri mér því að fara ekki á fleiri útsölur. Þá mundi ég bara kaupa eitthvað sem mig vantar alls ekki. (Mig vantaði samt alveg nýja sófaborðið - nei, afsakið, lampaborðið - sem ég keypti í fyrradag.) Svo að þegar ég var að labba upp Laugaveginn áðan var ég mjög staðföst og stoppaði ekki á neinni útsölu.
En svo klikkaði staðfestan.
Það er súkkulaðiútsala í Vínberinu.