Ég hef ekki séð Monsters, Inc., en börnin mín blessuð eru alveg sammála um að þegar ég er í nýju peysunni minni líti ég alveg eins út og annað aðaltröllið. Þetta hérna væntanlega.
Ég steig ofan á gleraugun mín áðan. Þau lifðu það af, merkilegt nokk. Eru ekki nema örlítið skökk á eftir. Ég þarf samt líklega að fara að fá mér ný. Sjónin er að breytast - ég er farin að þurfa að taka gleraugun af mér æ oftar. Þyrfti líklega að fá mér tvískipt gleraugu með rúðugleri í neðri hlutanum.
Eða lonníettur. Mig hefur alltaf langað í lonníettur.