Ég keypti mér héra, kanínu og akurhænur í Nóatúni áðan. Allt á 40% afslætti. Svona til að eiga í frystiskápnum; reyndar er ég að fá fjölskylduna í mat á eftir en ég ætla nú bara að gefa þeim risotto og kjúklinga (ekki kjúklingarisotto),
Svo á ég kengúru og sitthvað fleira áhugavert í frysti. Fólk sem kemur í mat til mín á næstu mánuðum gæti fengið eitthvað frekar exótískt.
Það gæti líka fengið kjöt í karríi. Ekki að það sé neitt slæmt ...