Í morgun þurfti ég að vakna snemma til að elda fyrir Ísland í bítið en tókst að sofa dálítið yfir mig og var þess vegna of sein með allt, kjúklingurinn enn í ofninum þegar komið var að sækja mig og ég átti eftir að skipta um föt ... Við komumst nú samt í sjónvarpið og það gekk allt vel en þegar ég kom hingað upp eftir var ég frekar rugluð; var á einhverjum öðrum tíma en aðrir á staðnum og var komin fram í afgreiðslu klukkan tíu að sækja hádegismatinn minn. Skildi ekkert í því af hverju hann var ekki kominn.
Ég er enn ein á ritstjórninni. Er að hugsa um að halda fund með sjálfri mér á eftir og taka einhverjar stefnumarkandi ákvarðanir.