Ég smakkaði yfir 50 Búrgundarvín á þremur dögum. Fyrir utan marc og armaníak og svoleiðis. Og raðaði í mig anda- og gæsalifur, froskalöppum, sniglum, dádýrasteikum, andabringum, alikálfum, Charolais-nautum, sólkolum, hönum, trufflum, skógarsveppum, skinkum, úrvalsgóðum ostum, búðingum, ísum, creme brulee-um og ég veit ekki hverju.
Þetta var nokkuð góð helgi.
Nánari frásögn kemur seinna.