Ég fór til læknis í morgun til að fá staðfest það sem ég vissi, að blóðþrýstingurinn er bara ekkert að lækka þrátt fyrir blóðþrýstingsmeðalið sem ég er að háma í mig. Og þrátt fyrir að ég sé eitthvað að grennast. Samt hef ég nú verið laus við helvítis heilablóðfallshausverkinn sem ég var með í fyrravetur og varð á endanum til þess að ég fór og lét mæla blóðþrýstinginn. Ég stóð lengi í þeirri meiningu að hann stafaði af koffínskorti á morgnana.
En þetta lagast nú vonandi eitthvað þegar helvítis jólastressið er frá.