Efnafræðistúdentinn (að fletta Gestgjafanum): -Grænmetislasagne??? Hvaða pervert dettur í hug að búa til grænmetislasagne?
Móðirin: -Eeee - sko - ég borðaði einmitt grænmetislasagne í hádeginu.
Efnafræðistúdentinn: -Þú ert nú líka ekki í lagi.
Móðirin: -En ég eldaði það allavega ekki. Huggaðu þig við það.
Ég var að hugsa um að bjóða honum í lasagne til að bæta álit hans á mér. En svo mundi ég að hann er farinn að fullyrða að hann búi til betra lasagne en ég. Svo að ég sleppti því alveg.