Mig dreymdi í nótt - og það gerist nú ekki oft að ég muni draumana mína - að til mín kom par með alveg nýfætt barn. Ég kannaðist eitthvað við þau en kom þeim þó ekki fyrir mig. Maðurinn sagðist vera frændi minn.
Og svo kveiki ég á textavarpinu og það fyrsta sem ég sé er að það er fæddur prins hjá Frikka og Maju. Við Frikki erum náttúrlega skyld aftur í ættir. Segið svo að ég sé ekki berdreymin.