Efnafræðistúdentinn var að koma heim úr vinnunni.
Móðirin: -Ég er á kafi í mikilvægum tölvuleik, þú getur hitað matinn handa þér sjálfur. Og hitaðu kaffi handa mér í leiðinni.
Efnafræðistúdentinn: -Hnuh.
Móðirin: -Og þetta er nautasteik sem ég keypti á 50% afslætti af því að hún var komin á síðasta söludag þannig að það er mér að kenna ef þú færð í magann.
Efnafræðistúdentinn: -Rétt eins og alltaf síðustu 24 árin.
Því lýgur hann að vísu. En kannski er ég ekki nógu góð mamma.