Hérna ligg ég farlama í sófanum eftir langan og erfiðan vinnudag, gjörsamlega að drepast í hnénu, sé fram á langan og strangan dag á morgun, tölvan enn biluð, tölva efnafræðistúdentsins að stríða mér, ekkert áhugavert á neinni þessara fjörutíuogeitthvað sjónvarpsstöðva sem ég er með. Og svo rakst ég á þetta. Bjargaði gjörsamlega kvöldinu. Fyrir okkur mæðginin bæði.
Segið svo að geislasverð geri ekki sitt gagn.