Ég var að sækja um orlofsbústað hjá Blaðamannafélaginu í sumar. Þar á bæ virðast nú vera fleiri en formaðurinn sem ekki eru of klárir á tímatalinu. Tekið er fram að skipti fari fram á föstudögum eins og venja er með orlofsbústaði en samkvæmt þeim dagsetningum sem gefnar eru upp á síðunni byrja allar vikurnar hjá BÍ á mánudögum.
Ég sendi nú samt inn umsókn og miðaði hana við föstudaga. Spurning hvernig lesið verður úr henni.