Ég er að hugsa um að horfa á Bird on a Wire á eftir. Svosem ekkert sérstök mynd en það er alltaf hægt að horfa á Mel - eða var það allavega, hann er reyndar núorðið ekki eins áhorfsvænn og hann var en þannig fer nú fyrir flestum (nema auðvitað Sean Connery, sem verður bara flottari). Eða bossann á honum - er það ekki örugglega í þessari mynd sem hann fær haglaskot í afturendann og dýralæknirinn plokkar þau út
Ég var reyndar að hugsa um að baka eina eða tvær kökur í kvöld en nenni því ekki þegar til kemur, geri það bara í fyrramálið. Annars er ég búin að liggja í leti í dag og gera nákvæmlega ekki neitt. Og á það bara skilið eftir síðustu viku. Hún var frekar erfið.