Ég er enn í vinnunni. Og ekkert á heimleið. Aumingja efnafræðistúdentinn verður að finna sér eitthvað að borða sjálfur. Ég er aftur á móti búin að elda pasta ofan í vinnufélagana. Út á það notaði ég sérstaka hollustupastasósu sem ég útbjó í morgun fyrir kynningu og átti afgang frá myndatökunni. Ekki nóg með að hún sé stútfull af vítamínum og alls konar hollustu, heldur rekur engiferinn í henni svæsnasta kvef norður og niður - jæja, eða slær allavega á það í bili. Hér er uppskriftin, og það má reyndar líka nota þetta sem kalda súpu (þynna kannski ögn með vatni eða eplasafa) eða ofan á brauð (nota minna af greip- eða appelsínusafa), jafnvel sem svaladrykk (blanda t.d. með sódavatni).
Allsherjarorkuhollustublanda
1 væn gulrót
4 tómatar, vel þroskaðir
1/2 gúrka
2-3 sm bútur af engifer
hnefafylli af spínati
safi úr 1 bleiku greipaldini eða 1 appelsínu
nokkur mintulauf (má sleppa)
nýmalaður pipar
salt
Gulrótin skafin, endarnir skornir af og hún skorin í bita. Tómatar og gúrka skorin í bita og engiferinn saxaður smátt. Allt sett í matvinnsluvél ásamt spínati, greipaldin- eða appelsínusafa og mintulaufi, og vélin látin ganga þar til allt er orðið að mauki (ekki mjög fíngerðu). Kryddað með nýmöluðum pipar og salti ? best er að krydda þessa blöndu dálítið ríflega og það mætti líka nota meira af engifer en hér er gefið upp.
Það er engin olía í sósunni en ég notaði reyndar svolítið af jómfrúarolíu út á pastað sjálft. Hefði líka getað sleppt því. Sósan er örugglega líka fín á t.d. kúskús eða hrísgrjón.