Efnafræðistúdentinn var að passa systurson sinn dálitla stund í dag. Hann sótti Sauðargæruna á leikskólann, fór með hann í bakaríið að kaupa snúð og kókómjólk og svo yfir á Letigarð. Benti drengnum á skrifstofustól þar:
Efnafræðistúdentinn: -Úlfur, viltu sitja á svona stól sem snýst og borða snúðinn þinn?
Sauðargæran (virðir stólinn fyrir sér): -Nei. Þetta er konustóll.