Siggi G. er á forsíðunni á jólablaði Mannlífs þrátt fyrir yfirlýsingar fráfarandi ritstjóra um að það þýði ekkert að setja karlmann á forsíðuna. Ég trúi nú ekki öðru en að Siggi afsanni það rækilega.
Það er mynd í blaðinu af Sigga og Láru með dæturnar. Mynd sem tekin var við sama tækifæri birtist í Séðu og heyrðu á dögunum og þá voru dæturnar þrjár. Mér fannst nú skrítið að Lára skyldi aldrei, öll þessi ár sem við erum búnar að vera saman í saumaklúbbi, hafa minnst á þriðju dótturina. Maður veit samt aldrei, þetta gat verið einhver nýuppgötvuð laundóttir Sigga. En nú hefur dætrunum aftur fækkað niður í tvær, mér til mikils léttis.