Eldhúsdagur í dag og nú eru það ekki stórsteikur og hnallþórur - ónei, við erum að vinna í janúarblaðinu og ég er að fara að elda fisk. Þorsk, ýsu og lúðu. Sem er afbragðsgóð tilbreyting frá öllum steikunum og sósunum og góðgætinu sem ég hef verið á kafi í að undanförnu.
Þá er ég ekki að meina að fiskur sé ekki góðgæti. Öðru nær. Bara öðruvísi góðgæti.