Aumingja Guðni Ágústsson segist hafa verið kvalinn eins og kona að fæða barn. Kvurn fjárann veit hann um það?
Minnti mig á þegar ég var kasólétt (held ég hafi sagt frá þessu áður), fékk heiftarlega nýrnaverki og það var kallað á lækni til mín upp á heimavist MA. Hann byrjaði á að spyrja mig hvort þetta væri eitthvað líkt fæðingarhríðum. Ég var sextán ára og leit ekki út fyrir að vera degi eldri. Nú vorum við stelpurnar á Króknum þekktar fyrir það að byrja barneignir ungar. En mér finnst þetta samt enn með heimskulegri spurningum sem ég hef fengið um dagana.