Efnafræðistúdentinn kemur, stillir sér upp fyrir framan móður sína og tilkynnir að hann sé að fara í bað.
Móðirin: -Já. (Örstutt hlé.) -Vertu ekki lengi. (Lítur upp og sér glottið.) -Þú varst að bíða eftir þessu, var það ekki?
Efnafræðistúdentinn: -Þú sagðir þetta á tveimur. Eins og ég vissi. Ég held að það sé nauðsynlegt að þú segir þetta. Um daginn gleymdirðu því og þá datt ég.