Ég fór með gagnlega barninu og afkvæmum hennar í Blómaval áðan. Keypti jólaseríu og fleira smádót, það kostaði eitthvað rúmlega þúsundkall og mér fannst það vel sloppið. En á undan okkur við einn kassann var maður að kaupa jólaseríur fyrir rúmar eitthundraðogsautjánþúsund krónur.
Ekki vildi ég búa í næsta húsi við hann. Allavega ekki ef þetta eru blikkseríur.