Ég mæti oft hjólreiðafólki þegar ég er að labba í vinnuna á morgnana. Í gærmorgun mætti ég einum á Skólavörðustígnum og fannst eitthvað áberandi skrítið við hjólið hans. Áttaði mig ekki strax á því hvað það var en svo rann það upp fyrir mér: Hann var með ljós á hjólinu. Og endurskinsmerki. Það er óvenjulegt.