Það eru til í eldhúsinu einir tíu kartöfluréttir sem ég útbjó fyrir myndatöku hér fyrr í dag. Samt þarf ég að elda meiri kartöflur á eftir, þegar Boltastelpan og fjölskylda hennar koma í mat.
Hún er nefnilega búin að tilkynna mér að það eigi að vera brúnaðar kartöflur. Og ég er svoddan amma ...