,,Eins og gæs sem búið er að affiðra," sagði maðurinn í sjónvarpinu áðan. Ég skildi nú alveg hvað hann átti við en mikið skelfing er ,,affiðra" skondið orð. Sérstaklega þegar maður sér það skrifað.
Ég þarf að baka fjórar tertur í kvöld sem á að mynda hér heima í fyrramálið. (Það þýðir samt ekkert að koma til mín í kaffi og bakkelsi fyrr en annað kvöld, ég fer aftur í vinnuna þegar búið er að mynda.) Ég þarf nú samt að taka pásu frá bakstrinum á meðan Queer Eye er á Skjá einum, búin að bíða lengi eftir að þeir sjáist aftur. Allavega skemmtilegri en Innlit-Útlit og svo hef ég fengið góðar hugmyndir við að horfa á þáttinn (öfugt við Innlit-Útlit). Litinn á eldhúsinu mínu sá ég til dæmis hjá þeim.