Ég ýtti á vitlausan takka á hrærivélinni áðan, ekki í fyrsta skipti. Afleiðing: Eitt stykki flórsykursþakið matargúrú. Plús flórsykur um allan eldhúsbekkinn, eldavélina, tertubotninn sem ég var að enda við að baka ... Flórsykursský yfir eldhúsinu.
Ég og minn brussugangur.