Afkomendur mínir komu hér áðan allir fjórir til að éta tertur, bakaðar í gærkvöldi fyrir sérstakan hnallþóruþátt sem verður í kökublaði Gestgjafans.
Boltastelpan (virðir fyrir sér bakkelsið): - Eru engar aðrar kökur?
Sauðargæran: - Ég er hundur.
Gagnlega barnið: - Hvernig kaka er þetta?
Matargúrú með súkkulaðiógeð: - Mokkaterta.
Gagnlega barnið og efnafræðistúdentinn fá hláturskast og kalla tertuna smokkatertu það sem eftir er kaffiboðsins.
Sauðargæran: - Oj, þetta er vond kaka.
Boltastelpan: - Er ekki til kex?
Matargúrú með súkkulaðiógeð: - Wise men say only fools rush in ... but I can't help falling in love with youuuuuu ...
Það er enn til nóg af tertum.