Leikskólavinir Sauðargærunnar eru búnir að átta sig á því að hann er afskaplega gefinn fyrir hlutverkaleiki og er sjaldan hann sjálfur. Allavega heilsaði Skarphéðinn vinur hans honum í morgun, þegar hann kom á Hagaborg, með kveðjunni:
- Hver ertu núna, Úlfur?
Venjulegur drengur hefði kannski verið sjóræningi eða kúreki eða slökkviliðsmaður eða Spæderman eða Bubbi byggir. En ekki þessi. Í dag reyndist drengurinn vera ruslabíll. Nánar tiltekið fljúgandi ruslabíll. Nema þegar hann var brennheit súkkulaðikaka.