Fyrst ég er á annað borð að rifja upp eitthvað um Leonard Cohen og gamla sénsa, þá datt mér í hug ein gömul minning:
Feimin ung kona með grænt sjal og Cohen-aðdáandi sem hún er í lauslegum tygjum við flatmaga á dýnu í turnherbergi á Skólavörðuholtinu síðdegis á sólríkum sunnudegi í miðjum júlímánuði og lesa saman baksíðutexta á skáldsögunni Beautiful Losers eftir Leonard Cohen (sem er skelfilega leiðinleg bók, btw).
Cohen-aðdáandinn: - Phallic? Veistu hvað phallic þýðir?
Feimna unga konan með græna sjalið (sem veit nákvæmlega hvað phallic þýðir): - Jaaa - sko - hmm - neeei ...