Var að baka fram yfir miðnætti. Vaknaði klukkan sex í morgun til að baka. Búin að vera að baka síðan og er ekki búin. Þarf að baka í kvöld og á morgun líka. Eins gott að mér finnst það ekkert sérstaklega leiðinlegt.
Þeir sem eru á ferðinni um kaffileytið á morgun (verkfallsleiðir grunnskólanemar, til dæmis) og langar í kökur geta litið við á Kárastígnum, við verðum að mynda þar eftir hádegið.