Ég var sótt í vinnuna áðan og um leið og ég settist inn í bílinn tilkynnti barnabarnið mér óðamála:
- AMMA! Pabbi sagði að þú værir í ÖMURLEGUM kjól!
Uppáhaldstengdasonurinn: - Nei, ég sagði ömmulegum ...
Hmm, kannski ætti ég að endurskoða fatavalið. En reyndar var ég alls ekki í kjól.