Ég er í jólaskapi ...
Hvernig væri annað hægt? Búin að sjóða hangikjöt, steikja laufabrauð og reyta og svíða rjúpu. Og búa til súkkulaðiskyrtertu í eftirmat. Því miður verður þetta ekki myndað fyrr en á morgun og þangað til verð ég að láta mér nægja reykinn af réttunum. Eða öllu heldur rauðvínsglas og súkkulaðibita.