Þá er þessi hrina yfirstaðin og myndatökum fyrir bókina lokið. Ekki að ég sé laus við matarmyndir á næstunni, það þarf að mynda allt sem ég geri fyrir næstu tvö tölublöð Gestgjafans á næstu tveimur vikum því að svo er ég farin í frí. En það er allt öðruvísi dæmi. Sjálfsagt er svo líka einhverjar tökur fyrir grænmetisbændur en það er nú minna mál.
Að allt öðru: Almennt séð finnst mér ekki til bóta þegar menn koma sér upp mölleti. En ég held að héðan í frá geti ekkert bjargað David Beckham nema almennilegt möllet.