(function() { (function(){function b(g){this.t={};this.tick=function(h,m,f){var n=void 0!=f?f:(new Date).getTime();this.t[h]=[n,m];if(void 0==f)try{window.console.timeStamp("CSI/"+h)}catch(q){}};this.getStartTickTime=function(){return this.t.start[0]};this.tick("start",null,g)}var a;if(window.performance)var e=(a=window.performance.timing)&&a.responseStart;var p=0=c&&(window.jstiming.srt=e-c)}if(a){var d=window.jstiming.load; 0=c&&(d.tick("_wtsrt",void 0,c),d.tick("wtsrt_","_wtsrt",e),d.tick("tbsd_","wtsrt_"))}try{a=null,window.chrome&&window.chrome.csi&&(a=Math.floor(window.chrome.csi().pageT),d&&0=b&&window.jstiming.load.tick("aft")};var k=!1;function l(){k||(k=!0,window.jstiming.load.tick("firstScrollTime"))}window.addEventListener?window.addEventListener("scroll",l,!1):window.attachEvent("onscroll",l); })();

Konan sem kyndir ofninn sinn

Eldhúsreyfarar miðaldra matargúrús á Skólavörðuholtinu

11.5.04

Ég kom auga á svefnherbergisgluggann minn í tveimur fasteignaauglýsingum áðan. Nei, íbúðin mín er ekki til sölu, en kjallarinn er hins vegar kominn í sölu og risíbúðin í (sambyggða) húsinu við hliðina líka. Þannig að ef ykkur dreymir um að búa á Kárastígnum (frábær gata), þá er tækifærið núna.

Annars kom mér á óvart að sjá hvað er sett hátt verð á þessar íbúðir. Annaðhvort hefur fasteignaverð hækkað töluvert að undanförnu eða spár um að Kárastígur og nágrenni sé að verða Notting Hill Reykjavíkur eru farnar að rætast (það var allavega útimarkaður neðst í götunni á menningarnótt í fyrra). Hvort heldur sem er, þá er ég sennilega ríkari en ég hélt. Ef mín íbúð hefur hækkað eitthvað álíka.

|