Hvað er í gangi?
Um daginn skreiddist ég fram úr rúminu snemma morguns, kveikti á sjónvarpinu aldrei þessu vant og það fyrsta sem ég sá var tærnar á Rut Reginalds. Núna mæti ég í vinnuna, fæ nýjasta Séð og heyrt á borðið hjá mér, opna blaðið af handahófi og hvað er það fyrsta sem ég sé? Já, einmitt. Tærnar á Rut Reginalds. Þær eru sjálflýsandi. Ég missti af því í Ísland í bítið.