Jæja, ég er búin að grilla steinbít með engifer, bleikju með timjani og sítrónu, skötusel með marokkósku kryddi, lúðu með grænmetisblöndu og appelsínumaríneraða hörpuskel. Plús litla, heila kjúklinga kryddaða með herbes de provence-kryddblöndu, mesquitekryddaðan kjúkling, jamaíska jerk-kjúklingaleggi, kókosmaríneraða kjúklingapinna með afar litskrúðugu ávaxtasalati og kjúklingafajitas (nei, ég var ekki að herma eftir Jóa Fel). Og baka brauð með fetaosti og spínati á grillinu.
Mér skilst á efnafræðistúdentinum að ég þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af kjúklingahlutanum af afgöngunum. Hann er svangur (efnafræðistúdentinn alltsvo).