Ég var að lesa um nemanda sem var rekinn úr skóla fyrir að henda böku í hausinn á skólastjóranum ,,during a pie-throwing event". Það finnst mér fullharkalegt. Ekki var Raggi, sem var í þriðja bekk í MA um leið og ég, rekinn þegar hann henti blautri klósettrúllu í hnakkann á Tryggva skólameistara á busavígslunni. Busavígslan var að vísu stöðvuð en það var búið að ákveða það þegar þetta gerðist og Tryggvi var á leiðinni að stoppa lætin. Raggi fullyrti statt og stöðugt að hann hefði dýft rúllunni ofan í vatnskassann á klósettinu en ekki klósettið sjálft. En hvað sem því leið gaf Tryggvi honum séns.
Í það skiptið.