Ég hefði kannski átt að vera áfram á Vínbarnum fram eftir kvöldi að spjalla um kavíar, kálfakjöt og gæsalifur, þá hefði ég ekki verið heima þegar Helga Vala hringdi og bað mig að koma í viðtal núna á eftir.
En þá hefði ég kannski ekki verið með heilsu til að fara í viðtal núna á eftir. Um mat, auðvitað. En ekki kavíar og gæsalifur. Mögulega kálfakjöt.