Ókei, búin að elda fjóra lambakjötsrétti, búa til sex eða átta sósur, og fletta í gegnum Séð og heyrt. Það sem vakti helst athygli mína var þetta:
1) Getur einhver útskýrt fyrir mér hvernig Óskars-kjóllinn hennar Nicole Kidman helst uppum brjóstin á henni? Teppalím?
2) Lúðvík Bergvinsson og konan hans minna mig pínulítið á Karíus og Baktus.
3) Ég las fyrst að kjóllinn sem Ágústa Johnson var í á þingmannaballinu væri frá Evuklæðum og fannst það mjög athyglisvert nafn á fatabúð. En það stóð víst Eðalklæðum.
4) Samstarfskonur mínar á Gestgjafanum eru á mynd sem ber yfirskriftina Vín fyrir vandláta. Ég er ekki þar. Ég drekk hvaða sull sem er.
5) Neibb, enginn Stefán. Þetta eru mistök.