Leiðindaveður.
Uppáhaldshúfan mín fauk af mér í Austurstrætinu í morgun en mér tókst með harðfylgi að elta hana uppi áður en hún fauk út í Lækjargötu. Kannski ætti ég bara að fara húfulaus út í Nóatún á eftir, vil helst ekki missa hana af mér út í sjó.
Ég var að fá nýtt Séð og heyrt á borðið hjá mér. Ég má ekki vera að því að lesa það í gegn en við fyrstu flettingu sé ég enga mynd af Stefáni Pálssyni. Bara einhverjum öðrum krullunáunga en sá er piparsveinn. Það er Stefán ekki. Þarf að skoða þetta betur á eftir, það er ótækt að hafa ekki mynd af Stefáni.