Þið hafið líklega heyrt um djúpsteikt Mars-súkkulaði, en nýjasta trendið í Skotlandi er djúpsteikt súkkulaðisamloka. Tvær franskbrauðssneiðar, dýft í súkkulaðisósu, svo í djúpsteikingardeig og síðan steiktar. Sykur sigtaður yfir, meiri súkkulaðisósa, og borið fram með ís. Tilhugsunin ein dugir til að stífla kransæðarnar.