Tengdamóðir mín fyrrverandi, amma efnafræðistúdentsins, lést á Borgarspítalanum fyrr í kvöld. Við vorum aldrei nánar en hún reyndist mér að mörgu leyti vel á sínum tíma. Ég sá hana ekki oft á síðari árum, ekki fyrr en seinustu tvö árin; hún átti erfitt og ég reyndi að liðsinna henni en hefði viljað gera meira.