Það verður tómataveisla hér á eftir, á borðstofuborðinu bíða átta tómataréttir eftir því að einhverjir komi og borði þá og ef einhverjir tómatafíklar eiga leið um Kárastíginn ættu þeir endilega að líta inn - hér eru tómatasalöt af ýmsu tagi, fylltir tómatar, tómatbaka, tómatbrauð og tómatbollur sem reyndar eru að klárast svo að ég er þegar byrjuð að baka annan skammt.