Hitti nokkra Guðmunda sem ég þekki á Mat 2004 og fór með þeim út á eftir. Einhverjir Guðmundanna vildu endilega fara á krá í Kópavogi. Ég hef vantrú á krám í Kópavogi og skynsamt fólk kom því til leiðar að það var farið á Vínbarinn í staðinn. Sem er gott mál, ég get ævinlega gengið heim af Vinbarnum en örugglega ekki af krám í Kópavogi.
Ég nennti nú ekki að vera mjög lengi. Vinnudagur á morgun og ég þarf m.a. að vera eitthvað á sýningunni. Tveir af Guðmundunum voru eitthvað að plana að fá mig lánaða um tíma til að hafa mig sem propps í básnum hjá sér en það mál er óleyst.