Boltastelpan vaknaði í morgun, leit á klukkuna, gaf mér onlbogaskot og tilkynnti:
- Ég átti að fá grautinn minn fyrir TUTTUGU OG SEX MÍNÚTUM!
- Onei, sagði ég og hreyfði mig ekki.
- Ókei, þú áttir að byrja að elda hann fyrir TUTTUGU OG SEX MÍNÚTUM!
Klukkan var 9:26. Það var búið að lofa henni grjónagraut í morgunmat.