Allt í einu bara fullt í fréttum án þess að Davíð, Ólafur, Bónusfeðgar eða bankar séu nefndir einu orði: Maður drepinn fyrir austan, fegrunarsamkeppni mæðgna af Suðurnesjum í uppnámi, skiptimynt rænt í banka í Hveragerði, Guttormur og Gráskinna eignuðust rauðhuppótta kvígu í fyrrakvöld ... og þetta voru bara innlendu fréttirnar.
Af útlendu fréttunum sem ég hef lesið í dag var það aftur á móti þessi sem vakti athygli mína.