Alveg er sama hvert ég fer, hvort sem það er á opnun á sýningu, einhverri uppákomu á veitingahúsi, vínkynningu, í afmælisboð eða jafnvel í móttöku hjá Hollandsdrottningu, ég lendi aldrei í neinu Hverjir voru hvar-dæmi. Ég slepp meira að segja að mestu við að koma í Séð og heyrt þótt ég sé dyggur lesandi eins og ég sannaði fyrir ritstjóranum í gær. Ég er til allrar hamingju ekki nógu mikið seleb.
Sama verður víst ekki sagt um hann bróður minn, sem ekki má hreyfa sig án þess að paparazzi-ljósmyndarar Baggalúts festi það á filmu ...